Mats Hummels átti stórleik er Borussia Dortmund lagði nýliða Arminia Bielefeld að velli í dag.
Hummels skoraði bæði mörkin í 0-2 sigri og var næstum kominn með stoðsendingu fyrir þrælmagnaða fyrirgjöf.
Hummels var rétt kominn yfir miðjulínuna á vinstri væng þegar hann sá Jadon Sancho í vítateignum og smellti til hans knettinum með utanfótar sendingu.
Sendingin rataði á koll Sancho en skallinn ekki góður og greip markvörður Arminia knöttinn.
Insane ball pic.twitter.com/fowOx3jcGQ
— Billy (@Billyinho7) October 31, 2020
Athugasemdir