Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 31. október 2022 10:34
Elvar Geir Magnússon
Messi verið í viðræðum við Inter Miami í marga mánuði
Mynd: EPA
Bandaríska félagið Inter Miami er sagt mjög vongott um að krækja í Lionel Messi og vonast til þess að hann skrifi undir samning á komandi mánuðum.

Framtíð Messi hefur verið mikið í umræðunni og hann verið orðaður við endurkomu til Barcelona. Þessi 35 ára leikmaður er samningsbundinn PSG þar til næsta sumar og vill franska félagið framlengja við hann.

The Athletic segir að leynilegar viðræður hafi átt sér stað undanfarna mánuði. Viðræðurnar hafi gengið það vel að forráðamenn félagsins telja að Messi komi.

Meðal eigenda Inter Miami er David Beckham en félagið var stofnað fyrir fjóru og hálfu ári. Stjóri liðsins er Phil Neville.
Athugasemdir
banner
banner
banner