Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 31. desember 2017 19:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Giggs vill sjá Man Utd einbeita sér að 2. sætinu
Mynd: Getty Images
Ryan Giggs, leikjahæsti leikmaður í sögu Manchester United segir að félagið eigi að einbeita sér á að ná 2. sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Hann segir að sitt gamla félag verði að sætta sig við að erkifjendurnir í Manchester City séu með besta liðið og ætti Manchester United því að horfa til 2. sætisins.

Þá vill hann einnig sjá sitt gamla félag ná góðum úrslitum í bikarnum og Meistaradeild Evrópu.

„Ég held að Manchester United þurfi að vinna hvern einasta leik til loka tímabilsins, sem er nánast ómögulegt, og þá þarf Manchester City að tapa nokkrum leikjum, sem er einnig ólíklegt," sagði Giggs.

Giggs er goðsögn í lifandi lífi hjá Manchester United en hann er leikjahæsti og sigursælasti leikmaður í sögu félagsins
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner