Á vef Nike í kvöld var boðið upp á möguleika á að kaupa Barcelona treyju og fá hana merkta Philippe Coutinho. Boðið var upp á fría merkingu til 6. janúar en færslunni var eytt skömmu eftir að hún fór í loftið.
Barcelona reyndi ítrekað að fá Coutinho í sínar raðir frá Liverpool síðastliðið sumar en án árangurs.
Margir telja að þessi færsla á vef Nike í kvöld hafi óvart farið í loftið of snemma en hún þykir ýta undir að Coutinho gangi í raðir Barcelona þegar félagaskiptaglugginn opnar í vikunni.
Sumir stuðningsmenn Liverpool vilja hins vegar meina að Barcelona sé að nota Nike til að ýta á að fá félagaskiptin í gegn. Félögin hafa ekkert tjáð sig um málið en Liverpool hefur alltaf sagt að Coutinho sé ekki til sölu.
Það ætti að koma í ljós á næstu dögum hvort að færslan hjá Nike í kvöld hafi verið birt fyrir mistök eða hvort að félagaskiptin stóru séu handan við hornið.

WOW: The Nike store has been updated to accommodate Philippe Coutinho's transfer to Barcelona!
— 101 Great Goals (@101greatgoals) December 31, 2017
😱😱😱 pic.twitter.com/iJOVKoBVsc
Athugasemdir