Sam Allardyce var að vonum svekktur eftir tap sinna manna í Everton í gær gegn Bournemouth.
Ryan Fraser skoraði sigurmark Bournemouth undir lok leiks eftir að Gana Gueye hafði jafnað fyrir Everton.
„Við gáfum þeim tvö mörk í dag, við höfum verið að gera mistök sem hafa kostað okkur mikið," sagði Stóri Sam.
„Við erum aðeins að ströggla í augnablikinu, það eru margir leikmenn að snúa aftur eftir meiðsli núna en þetta mun verða betra."
Everton mætir næst Manchester United, á morgun, Nýársdag.
Athugasemdir