Franski framherjinn Karim Benzema hefur komist að samkomulagi við Real Madrid um að framlengja samninginn til ársins 2022. Þetta kemur fram í spænskum vefmiðlum.
Benzema er 32 ára gamall en hann hefur verið einn besti leikmaður Madrídinga á tímabilinu.
Hann er með 16 mörk og 7 stoðsendingar í 23 leikjum á tímabilinu en núverandi samningur hans rennur út sumarið 2021.
Benzema hefur nú komist að samkomulagi við Real Madrid um að framlengja samninginn um eitt ár eða til ársins 2022 og mun hann skrifa undir samninginn næsta sumar.
Athugasemdir