Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 31. desember 2019 11:06
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: 433.is 
Emil Hallfreðsson búinn að skrifa undir hjá Padova
Emil Hallfreðsson er á leið til Ítalíu
Emil Hallfreðsson er á leið til Ítalíu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson er búinn að skrifa undir hjá ítalska C-deildarliðinu Padova en þetta kemur fram á 433.is í dag.

Emil, sem er 35 ára gamall, hefur verið án félags frá því í sumar en hann var síðast á mála hjá Udinese í Seríu A.

Hann hefur æft með ítalska C-deildarliðinu Padova síðustu daga en samkvæmt frétt 433.is er Emil búinn að skrifa undir samning.

Emil hélt sér þá í standi og æfði með FH-ingum hér heima en nú er ljóst að hann kemur til með að snúa aftur í ítalska boltann. Emil hefur spilað með Reggina, Hellas Verona og Frosinone á Ítalíu.

Padova er í 4. sæti í B-riðli C-deildarinnar en næsti deildarleikur liðsins er 12. janúar gegn Fano.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner