Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 31. desember 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Hulk ekki á leið til Espanyol
Mynd: Getty Images
Brasilíski sóknarmaðurinn Hulk er ekki á leið til Espanyol en spænska félagið staðfesti þetta á fréttamannafundi í gær.

Espanyol kynnti nýjan þjálfara á fundinum í gær en Abelardo tók við liðinu af Pablo Machin.

Rufete, yfirmaður íþróttamála hjá Espanyol, ræddi einnig við blaðamenn á fundinum en þar var hann spurður út í Hulk.

Brasilíski sóknarmaðurinn hefur verið orðaður við Espanyol síðustu vikur en hann hefur gert það gott í Kína síðustu ár. Hulk er þó ekki á leið til Spánar.

„Leikmaður eins og Hulk er ekki í boði fyrir Espanyol," sagði Rufete en sagði þó að félagið komi til með styrkja sig í janúar.

Espanyol er í fallbaráttu sem stendur en er komið áfram í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner