Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 31. desember 2019 21:12
Aksentije Milisic
Lingard fyrir leikinn gegn Arsenal: Erum með mikið sjálfstraust
Lingard fagnar marki gegn Arsenal.
Lingard fagnar marki gegn Arsenal.
Mynd: Getty Images
Jesse Lingard, leikmaður Manchester United, segir að sjálfstraustið hjá liðinu sé mikið fyrir leikinn gegn Arsenal annað kvöld.

Man Utd hefur unnið tvo leiki í röð yfir hátíðarnar. Liðið lagði Newcastle af velli á Old Trafford á öðrum degi jóla 4-1 og síðan kom góður útisigur gegn Burnley í kjölfarið. United er fjórum stigum frá meistaradeildarsæti.

„Við höfum mikla trú á hlutunum og sjálfstraustið í liðinu er mikið þessa stundina. Leikir á útivöllum geta verið mjög erfiðir en við erum vanir því. Svo lengi sem við höldum okkur við leikskipulagið þá getum við unnið þennan leik. Sjálfstraust og einbeiting er mjög mikilvægt," sagði Lingard.

„Þetta getur orðið leikur þar sem Arsenal verður mikið með boltann, eða við verðum mikið með boltann en við erum góðir í skyndisóknum og vonandi getum við nýtt okkur það. Við höfum spilað svona áður gegn þeim og það hefur gengið mjög vel".

Leikur Arsenal og Manchester United fer fram á Emirates leikvangnum og hefst hann klukann 20:00 í beinni útsendingu á Síminn Sport.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner