Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 31. desember 2019 10:30
Brynjar Ingi Erluson
Moyes fer fögrum orðum um sjálfan sig
David Moyes var ekki að spara stóru orðin
David Moyes var ekki að spara stóru orðin
Mynd: Getty Images
David Moyes tók við West Ham United á dögunum eftir að Manuel Pellegrini var látinn taka poka sinn en Moyes er kominn á kunnuglegar slóðir.

Moyes tók við West Ham í nóvember árið 2017 er liðið var í fallbaráttu en honum tókst að bjarga liðinu frá falli það tímabilið en félagið ákvað að framlengja ekki samning hans.

Hann er mættur aftur eftir nítján mánaða fjarveru en hann fór afar fögrum orðum um sjálfan sig á fréttamannafundi hjá West Ham.

„West Ham er að fá mjög reyndan knattspyrnustjóra í ensku úrvalsdeildinni," sagði Moyes.

„Ég held að það séu tveir eða þrír stjórar sem eru með betra sigurhlutfall í úrvalsdeildinni fyrir utan mig. Þetta er mín sérgrein, ég vinn leiki. Ég er hér til að ná í sigra og koma þeim úr fallbaráttu," sagði Moyes ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner