Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 31. desember 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Roma hækkar tilboð sitt í Smalling
Chris Smalling
Chris Smalling
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Roma hefur hækkað tilboð sitt í enska varnarmanninn Chris Smalling en þetta kemur fram í Gazzetta dello Sport.

Smalling kom til Roma frá Manchester United á láni í sumar og hefur verið frábær hjá ítalska félaginu.

Hann hefur spilað 15 leiki, skorað 2 mörk og lagt upp 1 en Roma er í viðræðum við United um kaup á leikmanninum.

United vill 20 milljónir evra fyrir Smalling en Roma hefur hækkað tilboð sitt í 15 milljónir evra plús þrjár milljónir í bónusa.

Ef United samþykkir tilboðið mun Smalling skrifa undir fimm ára samning við Roma.
Athugasemdir
banner
banner
banner