Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 31. desember 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Zanetti um Vidal: Hann er frábær karakter
Arturo Vidal
Arturo Vidal
Mynd: Getty Images
Javier Zanetti, varaforseti Inter á Ítalíu, hefur staðfest áhuga félagsins á Arturo Vidal.

Vidal er 32 ára gamall miðjumaður en hann er á mála hjá Barcelona.

Hann hefur verið í aukahlutverki á Nou Camp en þrátt fyrir að hafa spilað 19 leiki og skorað 5 mörk hefur hann aðeins leikið 767 mínútur.

Vidal höfðaði mál gegn Barcelona á dögunum en hann telur að félagið skuldi honum 2,4 milljónir evra í bónusgreiðslur.

Hann virðist vera á leið til Inter á láni út leiktíðina og á Inter svo möguleika á að kaupa hann næsta sumar. Antonio Conte, þjálfari Inter, þekkir vel til Vidal en hann þjálfaði hann hjá Juventus.

„Við sjáum hvernig þessi gluggi fer en við höfum mánuð til að gera eitthvað. Vidal er leikmaður með frábæran karakter og mikla reynslu, þannig sjáum hvað gerist. Við erum að tala um leikmann sem getur svo sannarlega gefið okkur mikið og hækkað standardinn og hann er nú þegar hár hjá okkur," sagði Zanetti.
Athugasemdir
banner
banner