Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 31. desember 2020 12:00
Aksentije Milisic
James ætti að snúa til baka 9. janúar
Mynd: Getty Images
James Rodriguez hefur misst af fimm síðustu leikjum Everton vegna meiðsla á kálfa.

Carlo Ancelotti, stjóri Everton, hefur hins vegar sagt að leikmaðurinn ætti að vera klár fyrir 9. janúar en þá mætir liðið Rotherham í FA bikarnum.

Síðasti leikur James fyrir Everton kom í byrjun mánaðarins en þá spilaði hann í 1-1 jafnteflisleik gegn Burnley.

„Við verðum að fylgjast með James frá degi til dags. Hann er ekki tilbúinn eins og er og þetta hefur tekið aðeins lengri tíma heldur en við vonuðumst eftir," sagði Carlo.

Ancelotti sagði þá frá því að Richarlison sé heill og klár í slaginn gegn West Ham á nýársdag.
Athugasemdir
banner
banner