Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 31. desember 2020 14:20
Aksentije Milisic
Juventus að kaupa hinn efnilega Nicolo Rovella
Rovella í leik gegn Juventus.
Rovella í leik gegn Juventus.
Mynd: Getty Images
Juventus er nálægt því að klára kaup á hinum unga og efnilega miðjumanni Genoa, Nicolo Rovella.

Talið er að kaupin gangi í gegn á næstu klukkustundum en Juventus fær leikmannin á um 9 milljónir punda.

Rovella mun fara strax á láni til Genoa og verður þar næstu tvö tímabil. Juventus vill leyfa leikmanninum að spila í Serie A og móta sig sem leikmann á þessum tveimur árum.

Andrea Pirlo, þjálfari Juventus, er mikill aðdáandi Rovella og hefur talað vel um leikmaninn. Juventus er að hafa betur við Inter Milan í baráttunni um þennan leikmann.
Athugasemdir
banner
banner
banner