fim 31. desember 2020 19:30
Victor Pálsson
Klopp: Sást hversu góður Thiago er
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var ánægður með innkomu miðjumannsins Thiago Alcantara í gær er hans menn spiluðu við Newcastle.

Leiknum lauk nokkuð óvænt með markalausu jafntefli þar sem gestirnir frá Liverpool voru meira með boltann en tókst ekki að koma knettinum í netið.

Thiago kom inná sem varamaður á 73. mínútu seinni hálfleiks en hann hafði verið frá vegna meiðsla síðan um miðjan október.

Klopp var hrifinn af frammistöðu leikmannsins en Thiago kom aðeins til Liverpool frá Bayern Munchen í sumar.

„Það komu augnablik þar sem við gátum séð hversu góður fótboltamaður hann er," sagði Klopp.

„Nú þurfum við að sjá hvernig hann bregst við og þess háttar. Við spilum aftur eftir fjóra daga svo tíminn er fljótur að líða."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner