Nú hefur verið staðfest að leikur Manchester United og Burnley fari fram þann 12. janúar næstkomandi. Leikurinn fer fram á Turf Moor heimavelli Burnley.
Þetta er frestaður leikur í fyrstu umferð deildarinnar en United fékk lengra frí vegna þess að liðið fór langt í Evrópukeppni.
United vildi spila þennan leik áður en það mætir Liverpool í deildinni og það hefur nú tekist og er leikurinn settur á þann 12. janúar.
Fimm dögum síðar mætir liðið Liverpool á Anfield. Leikmenn United voru tilbúnir til þess að fórna fríi sínu í miðri viku til þess að fá að spila þennan leik og setja pressu á Liverpool.
United getur jafnað Liverpool að sigum á toppi deildarinnar takist liðinu að leggja Aston Villa að velli á morgun á Old Trafford.
Athugasemdir