Í dag, gamlársdag fer fram venju samkvæmt, val á Íþróttamanni Vals.
Þetta verður í 28. skipti sem að valið fer fram og verður valið kunngjört með óhefðbundnu sniði vegna aðstæðna í samfélaginu.
Val á íþróttamanni Vals skipar veigamikinn sess í starfi félagsins og verður viðburðurinn sýndur á netinu.
Streymi með upptöku frá valinu birtist á heimasíðu félagsins klukkan 12:20 og útsending hefst stundvíslega klukkan 12:30.
Athugasemdir