sun 30.sep 2018[email protected] Efnilegastur 2018: Nýtti tækifærin sem Gústi gaf mér mjög vel
Willum átti frábært tímabil.
Fótbolti.net velur Willum Þór Willumsson efnilegasta leikmann Pepsi-deildarinnar 2018. Willum, sem er 19 ára, spilaði sig inn í lykilhlutverk hjá Breiðabliki á liðnu tímabili og bætti liðið klárlega.
„Persónulega hefur mér gengið mjög vel á þessu tímabili," sagði Willum við Egil Sigfússon, fréttamann Fótbolta.net, eftir að Breiðablik innsiglaði 2. sæti deildarinnar í gær.
„Ég byrjaði á bekknum í byrjun móts og svo var Gústi duglegur að gefa mér tækifæri og mér fannst ég nýta þau mjög vel."
Verður hann áfram í Breiðabliki eða mun hann reyna fyrir sér erlendis?
„Það verður bara að koma í ljós. Eins og staðan er núna verð ég áfram en maður veit aldrei," segir Willum en viðtalið við hann má sjá í heild hér að neðan.