mán 15.apr 2019
[email protected]
Blikarnir stefna á að fá einn leikmann til viðbótar
 |
Ágúst Gylfason þjálfari Breiðabliks. |
Breiðablik stefnir á að styrkja sig með einum leikmanni í viðbót áður en Pepsi Max-deildin hefst eftir 11 daga. Þetta staðfesti Ágúst Gylfason þjálfari Breiðabliks í samtali við Fótbolta.net.
Um helgina keyptu þeir miðjumanninn, Guðjón Pétur Lýðsson frá KA. Ágúst segir að félagið sé með nokkra leikmenn á blaði hjá sér.
Við viljum styrkja liðið enn frekar og við viljum fá leikmann sem styrkir byrjunarliðið. Það eru 2-3 nöfn á borðinu hjá okkur," sagði þjálfari Breiðabliks sem vonar að málin geti klárast sem allra allra fyrst.
„Af þessum þremur nöfnum er einn erlendur leikmaður og tveir íslenskir leikmenn," bætti Gústi við.
Blikar höfnuðu í 2. sæti, bæði í deild og bikar, á síðasta tímabili.
Komnir: Kwame Quee frá Víkingi Ólafsvík Viktor Karl Einarsson frá IFK Värnamo í Svíþjóð Þórir Guðjónsson frá Fjölni Guðjón Pétur Lýðsson frá KA
Farnir: Arnór Gauti Ragnarsson í Fylki Arnþór Ari Atlason í HK Davíð Kristján Ólafsson í Álasund Gísli Eyjólfsson til Mjallby (Á láni) Oliver Sigurjónsson til Bodö/Glimt (Var á láni) Ólafur Íshólm Ólafsson í Fram (Á láni) Willum Þór Willumsson í BATE Borisov Aron Kári Aðalsteinsson í HK (á láni)
|