fös 13.nóv 2020
[email protected]
Hólmfríður: Sonur minn fær að vera í fyrsta sæti núna
Hólmfríður Magnúsdóttir ákvað að gefa ekki kost á sér í íslenska landsliðshópinn fyrir komandi leiki gegn Slóvakíu og Ungverjalandi í undankeppni EM.
Hólmfríður gekk á dögunum til liðs við Avaldsnes í Noregi eftir að hafa spilað með Selfyssingum í Pepsi Max-deildinni í sumar.
Hin 36 ára gamla Hólmfríður kom aftur í íslenska landsliðshópinn gegn Svíum á dögunum en hún gefur ekki kost á sér í komandi leiki. „Erfitt að segja nei, hefði óskað þess að vera hluti af þessu geggjaða liði. Að vera atvinnukona með barn í öðru landi er krefjandi. Sonur minn fær að vera í fyrsta sæti núna. Gangi ykkur vel," segir Hólmfríður á Twitter í dag.
|