fim 14.jan 2021
[email protected]
„Man Utd með ákaflega gott færi á að koma þungu höggi á Liverpool"
 |
Manchester United heimsækir Liverpool í toppslag á laugardaginn. |
 |
Magnús Gylfason og Hörður Magnússon |
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
|
Liverpool og Manchester United mætast í toppslag í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Þessir erkifjendur hafa ekki verið á sama tíma í titilbaráttu í langan tíma. Hörður Magnússon, lýsandi á Viaplay, og Magnús Gylfason, stjórnarmaður hjá KSÍ, fóru yfir málin fyrir þennan stórleik í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn."
„Frá því að ég byrjaði að fylgjast með hafa þessir miklu erkifjendur nánast ekki verið á toppnum á sama tíma í deildinni. Það er mikið eftir af mótinu en miðað við hvernig Liverpool hefur spilað upp á síðkastið og hvernig United hefur halað upp sigrum þá tel ég þetta vera algjöran 50/50 leik," sagði Hörður í þættinum.
„Manchester United kemur með þá gulrót í þennan leik að ná sex stiga forystu á Liverpool. Síðan er stutt í City og fleiri stórleiki hjá Liverpool. Þetta er dauðafæri fyrir United. Með sigri stimpla þeir sig algjörlega inn í toppbaráttu. Ef Liverpool vinnur gæti ég haldið að þetta sveiflist aftur í áttina að Liverpool og City." „Manchester United á þessum stað í tilverunni ákaflega gott færi á því að koma virkilega þungu höggi á Liverpool. Ég held að þeir fái ekkert mikið betra tækifæri til að koma með eitt þungavigtar á þá. Að sjálfsögðu vona ég að það gerist ekki." Manchester United hefur verið á góðu skriði undanfarnar vikur og Magnús er bjartsýnni fyrir leikinn við Liverpool en fyrir síðustu leiki liðanna. „Loksins á United góðan möguleika á að stríða Liverpool. Þetta hafa verið hörkuleikir síðustu ár en maður hefur ekki verið jafn vongóður og núna. Liverpool hefur ekki verið upp á sitt besta síðustu vikur," sagði Maggi. „Við erum orðnir samkeppnishæfari. Við erum að fara að spila á Anfield og Liverpool tapar sjaldan þar. Liverpool er sigurstranglegra liðið á sunnudaginn þó að United sé á toppnum," „Þó að það sé erfitt að segja það beint þá verð ég að láta það vaða að Liverpool og Manchester City virðast ennþá vera hænufeti á undan öðrum liðum í deildinni." Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Hér að neðan má hlusta á þáttinn.
|