fim 15.júl 2021
[email protected]
Byrjunarlið Breiðabliks gegn Racing Union: Óbreytt lið
 |
Jason Daði byrjar |
Breiðablik tekur klukkan 19:00 á móti lúxemborgska liðinu Racing Union í seinni leik liðanna í Sambandsdeildinni. Staðan í einvíginu er 3-2 fyrri Breiðabliki eftir fyrri leik liðanna.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, gerir engar breytingar frá fyrri leiknum sem fram fór fyrir viku.
Breiðablik lenti 2-0 undir í fyrri leiknum í Lúxemborg en kom til baka og skoraði Damir Muminovic sigurmark undir lokin. Áður höfðu þeir Gísli Eyjólfsson og Thomas Mikkelsen skorað fyrir Blika.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum!!
Byrjunarlið Breiðabliks: 1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Damir Muminovic 6. Alexander Helgi Sigurðarson 7. Höskuldur Gunnlaugsson (f) 8. Viktor Karl Einarsson
9. Thomas Mikkelsen 11. Gísli Eyjólfsson
14. Jason Daði Svanþórsson 20. Kristinn Steindórsson
21. Viktor Örn Margeirsson
25. Davíð Ingvarsson
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum!!
|