lau 15.jan 2022
[email protected]
England í dag - Englandsmeistarar gegn Evrópumeisturum
Það er stórleikur í hádeginu á Englandi í dag er Englandsmeistarar Manchester City spila við Evrópumeistara Chelsea.
Þessi leikur hefst 12:30 en fyrir viðureignina er Man City með 53 stig á toppnum og Chelsea er í því öðru með 43.
Með sigri myndi Man City fara langt með að tryggja sér titilinn en liðið er ekki mikið í að tapa stigum.
Fjórir leikir hefjast svo klukkan 15:00 og um kvöldið leikur Aston Villa við Manchester United á Villa Park.
Þessi lið mættust nýlega en Villa var þá sparkað úr bikarnum með 1-0 tapi.
ENGLAND: Premier League 12:30 Man City - Chelsea
15:00 Burnley - Leicester (Frestað)
15:00 Newcastle - Watford
15:00 Norwich - Everton
15:00 Wolves - Southampton
17:30 Aston Villa - Man Utd
|