fim 12.maí 2022
[email protected]
Kristall Máni: Það er bannað að dæma víti fyrir okkur
 |
Býst ekki við að fá fleiri víti í sumar |
"Ég myndi segja að fyrri hálfleikurinn hefði verið mjög góður en fannst við eiga gera betur í seinni og skora fleiri" Sagði Kristall Máni Ingason sóknarmaður Víkinga í viðtali eftir leik. Hvernig fannst Kristali Víkingsliðið koma inn í þennan leik eftir pirrandi jafnteflið gegn Leikni? "Fannst við bara gera vel í að byrja þennan leik almennilega þar sem við skorum 3 mörk á fyrstu 30 mínútunum en ég hefði samt viljað bæta við og halda hreinu, mér fannst við vera senda of mikið til hliðar í staðinn fyrir að reyna þræða boltann í gegn, kannski gerist það ósjálfrátt þegar maður er 3-0 yfir "
Eftir allt vítaspyrnu fíaskóið gegn Leikni í síðustu umferð þá áttu Víkingarnir enn og aftur að fá víti en Vilhjálmur Alvar dómari dæmdi ekkert, ætli Víkingar fái fleiri víti í sumar? "Nei, eins og staðan er núna þá er bannað að dæma víti fyrir okkur þannig ég býst ekki við að fá fleiri víti" Sagði Kristall léttur. Næsti leikur er á mánudaginn gegn sjóðandi heitum Blikum, er þetta ´must win´leikur að mati Kristals? "Já ég meina, Breiðablik eru með gott lið en eins og við höfum sýnt þá finnst mér við vera betri en Blikarnir" Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
|