lau 14.maí 2022
[email protected]
Kristófer Acox spáir í leiki helgarinnar á Englandi
 |
Boltanum troðið! |
 |
Big Rom á blaði og Chelsea lyftir dollunni |
Mynd: Getty Images
|
 |
Hodgson skuldar frúnni |
Mynd: Getty Images
|
 |
Hélt fólk að Super Frank myndi falla? |
Mynd: Getty Images
|
 |
Sendir Bruno Arsenal til Prag? |
Mynd: Getty Images
|
Kristófer Acox spáir í leiki helgarinnar á Englandi. Átta leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni og þá fer fram úrslitaleikurinn í enska bikarnum. Til að ná upp í tíu leiki þá spáir Kristó einnig í fyrri leik Sheffield United og Nottingham í Championship-umspilinu.
Kristófer er leikmaður Vals í körfubolta og hefur verið einn allra besti leikmaður Subway-deildarinnar í vetur. Valur er í lokaúrslitum deildarinnar og mætir Tindastól í fjórða leik liðanna á sunnudagskvöld.
Gary Martin, fyrirliði Selfoss, var spámaður síðustu helgar og var með sjö leiki rétta.
Svona spáir Kristófer leikjunum:
Sheffield United 3 - 1 Nottingham Forest (laugardag 14:00) Það væri nú draumi líkast að fá Forest aftur upp í efstu deild en þeir lenda í basli í fyrri leiknum gegn Sheffield. Einvígið er þó ekki búið og má búast við óvæntu í síðari leiknum, stay tuned.
Chelsea 3 - 2 Liverpool (laugardag 15:45) Við í bláu tökum þetta í virkilega skemmtilegum leik. Þetta veltur töluvert á því hvort Mateo Kovacic nái að spila því án hans gæti Chelsea lent í alls konar veseni. Við erum í hefndarhug eftir úrslitaleik deildabikarsins og höfum þetta að lokum, Big Rom er að hitna og hann kemst að sjálfsögðu á blað.
Tottenham 4 - 1 Burnley (sunnudag 11:00) Þessi sigur er aldrei í hættu, Tottenham nær þessu fjórða sæti og það er kominn tími á Burnley, búið spil. Áttu ágætis tilraun í að reyna að halda sér uppi en Sean Dyche fékk hnífinn í bakið og það mun alltaf kosta sitt.
Aston Villa 2 - 0 Crystal Palace (sunnudag 13:00) Það er stemning í Villa eftir endanlega komu Philippe Coutinho frá Barcelona og þeir sigla þessu heim. Steven Gerrard nennir ekki að enda tímabilið á einhverjum tapleikjum og þetta kemur heim.
Leeds 2 - 2 Brighton (sunnudag 13:00) Verður tæpt en Leeds nær stigi og á ótrúlegan hátt, fylgist með því. Komast í 35 stig fyrir ofan Burnley og í ágætis málum. Raphinha vill ekki kveðja Leeds með falli og skorar tvö mörk í þessum leik.
Watford 0 - 6 Leicester (sunnudag 13:00) Búið spil. Roy Hodgson er endanlega hættur þjálfun eftir þennan leik, áttar sig á eigin mistökum að taka við liðinu eftir þessa viðureign. Hann skuldar konunni og hann veit það vel.
West Ham 2 - 2 Manchester City (sunnudag 13:00) Jafntefli. Það er þannig, það er gefið að titilbaráttan verði enn opin fyrir lokaumferðina, endar ekki í 37. umferð. Man City verður miklu betri en umdeild vítaspyrna tryggir West Ham þetta dýrmæta stig í Evrópubaráttunni.
Wolves 1 - 0 Norwich (sunnudag 13:00) Verður svo leiðinlegur leikur en eitthvað brandaramark tryggir Wolves sigurinn og Twitter mun loga af bröndurum tengdum kanarífuglunum eftir leikinn.
Everton 3 - 0 Brentford (sunnudag 15:30) Mikill brandari að fólk hafi haldið að Super Frank væri að fara falla með Everton. Tekur við þrotabúi og er loksins að takast að fá þessa jólasveina á sitt band. Það sem Liverpool-menn geta skemmt, það getum við Chelsea-menn lagað.
Newcastle 4 - 1 Arsenal (mánudag 19:00) Arsenal partíið er búið. Komast yfir í þessum leik en stemningin á St. James' rífur heimamenn í gang og þeir fagna öruggum sigri þar sem töframaðurinn Bruno verður sjóðandi heitur. Best geymdir í Evrópudeildinni og við biðjum að heilsa Slavia Prag fyrir næstu leiktíð.
Fyrri spámenn: Gary Martin - 7 réttir Kristín Dís - 7 réttir Arnór Sig - 6 réttir Hörður Björgvin - 6 réttir Sveindís Jane - 6 réttir Venni Páer - 6 réttir Ingimar og Tóti - 6 réttir Arnór Gauti - 5 réttir Aron Þrándar - 5 réttir Siffi G - 5 réttir Davíð Snær - 5 réttir Benni Gumm - 5 réttir Mist Edvards - 5 réttir Karitas - 5 réttir Kristjana Arnars - 4 réttir Jeppkall - 4 réttir Ísak Bergman - 4 réttir Albert Brynjar - 4 réttir DigiticalCuz - 4 réttir Sammi - 4 réttir Janus Daði - 4 réttir Arnar Laufdal - 3 réttir Áslaug Munda - 3 réttir Elías Már - 3 réttir Orri Steinn - 3 réttir Villi Neto - 2 réttir Davíð Atla - 2 réttir Sóli Hólm - 2 réttir Bjarki Már - 1 réttur
|