fös 27.maí 2022
[email protected]
Lengjudeildin: Kórdrengir sóttu stig til Fjölnis
 |
 |
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
|
Fjölnir 1 - 1 Kórdrengir 1-0 Reynir Haraldsson ('45) 1-1 Þórir Rafn Þórisson ('90)
Fjölnir og Kórdrengir áttust við í fyrsta leik kvöldsins í Lengjudeild karla og úr varð hörkuslagur. Það ríkti nokkuð jafnræði með liðunum framan af en heimamenn voru hættulegri í Grafarvoginum og átti Lúkas Logi Heimisson skalla í slánna í fyrri hálfleik. Þegar menn voru að gera sig tilbúna til að ganga til búningsklefa í leikhlé leit fyrsta markið dagsins ljós. Reynir Haraldsson slapp þá í gegn eftir frábæra sendingu innfyrir vörnina, Reynir tók eina snertingu áður en hann hamraði boltanum í netið. Staðan var því 1-0 í hálfleik og gerðist lítið marktækt í síðari hálfleik, allt þar til á lokamínútum leiksins þegar Kórdrengir lögðu mikinn þunga í sóknina. Sá þungi skilaði sér með jöfnunarmarki á 90. mínútu. Þórir Rafn Þórisson skoraði þá eftir langa stórsókn Kórdrengja og jafnaði. Menn voru þó hvergi hættir og enginn að sætta sig við jafnteflið, bæði lið fengu góðar sóknir í uppbótartíma en inn fór boltinn ekki og niðurstaðan jafntefli. Bæði lið eru búin að spila fjórar umferðir í Lengjudeildinni í sumar. Fjölnir er með sjö stig og Kórdrengir með fimm. Sjáðu textalýsinguna
|