fim 01.sep 2022
[email protected]
Forest fær Loic Bade frá Rennes (Staðfest)
Nottingham Forest er búið að staðfesta komu 22 ára varnarmannsins Loic Bade á lánssamningi frá Rennes með kaupmöguleika.
Badé á þrjá leiki að baki fyrir 21 landslið Frakka og spilaði 21 leik með Rennes á síðustu leiktíð. Hann er miðvörður og er fenginn til að veita mönnum á borð við Willy Boly, Loïc Mbe Soh og Steve Cook samkeppni um sæti í byrjunarliðinu. Hann er leikmaður númer 21 sem Forest kynnir í sumarglugganum.
|