sun 11.sep 2022
[email protected]
Kæmi sér ekki á óvart ef Gilmour spili fyrir City eða Liverpool
Hinn 21 árs gamli Billy Gilmour gekk til liðs við Brighton frá Chelsea í sumar en hann vildi spila undir stjórn Graham Potter sem yfirgaf Brighton stuttu síðar til að taka við Chelsea.
Gilmour var á láni hjá Norwich á síðustu leiktíð en gekk illa að festa sig í sessi í liðinu. Pat Nevin fyrrum framherji Chelsea hefur þó mikla trú á Gilmour og telur að hann eigi vægast sagt bjarta framtíð fyrri sér. „Eftir 4-5 ár yrði ég ekki hissa ef hann væri að spila á miðjunni hjá Man City, Liverpool eða Chelsea, hann er það tæknilega góður," sagði Nevin.
|