mán 12.sep 2022
[email protected]
Gonzalo framlengir við Selfoss (Staðfest)
 |
Gonzalo Zamorano |
Spænski kantmaðurinn, Gonzalo Zamorano, hefur skrifað undir tveggja ára framlengingu á samning sínum við knattspyrnudeild Selfoss.
Gonzalo kom til liðsins frá ÍBV í vetur og hann hefur komið sterkur inn. Hann hefur skorað 14 mörk fyrir félagið í öllum keppnum. „Ég elska að vera á Selfossi. Félagið og liðið er að vaxa í rétta átt og ég vil vera partur af því. Ég hef mikla trú á þjálfurunum og liðinu. Ég er viss um að liðið verði betra á næsta tímabilið með alla þessa frábæru ungu leikmenn sem verða reynslumeiri og enn betri á næsta ári,” sagði Gonzalo við undirskriftina. Selfoss leikur gegn KV í lokaumferð Lengjudeildarinnar á laugardaginn.
|