fös 16.sep 2022
[email protected]
Litla flugvélin spáir í leiki helgarinnar á Englandi
 |
Litla flugvélin er til vinstri á þessari mynd. |
 |
Harry Kane. |
Mynd: EPA
|
 |
Ivan Toney. |
Mynd: Getty Images
|
 |
Skorar Jói Berg? |
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
|
Enska úrvalsdeildin fer aftur af stað í kvöld eftir alltof langa pásu. Það var gert hlé á deildinni til að sýna Elísabetu drottningu virðingu en hún lést í síðustu viku.
Það er þremur leikjum frestað um helgina þar sem lögreglan á Bretlandseyjum þarf að vera vel á tánum í kringum útför drottningarinnar.
Ingimar Helgi Finnsson, eða litla flugvélin eins og hann er gjarnan kallaður, spáir í leiki helgarinnar að þessu sinni.
Aston Villa 2 - 1 Southampton (19:00 í kvöld) Ég hef verið nokkuð hrifinn af þessu Southampton prógrammi hingað til. Mikið af ungum leikmönnum að spila og mörgum hent í djúpu laugina. Á meðan virðast Villa vera í brasi og vita ekkert hvernig þeir vilja spila. Gerrard mikið að skipta á milli kerfa. Að því sögðu þá hittir Gerrard á réttu blönduna í kvöld og Villa klárar þetta með marki frá Leon Bailey djúpt inni í leiknum.
Nottingham Forest 2 - 2 Fulham (19:00 í kvöld) Bæði lið hafa litið vel út og þá sér í lagi Fulham. Nottingham litið oft á tíðum vel út en verið sjálfum sér verstir þegar kemur að því að sækja
úrslit. Ég spái stórkostlegum leik. Mitrovic heldur uppteknum hætti og skorar tvö. Wolves 1 - 2 Manchester City (11:30 á morgun) Þetta annars skrýtna Wolves lið getur gefið öllum leik á sínum degi. Ég ætla að segja að þeir gefi City leik og þetta verður torsóttur sigur City að lokum. Haaland skorar 2 eftir að hafa varla snert boltann í leiknum. Pedro Neto skorar fyrir Wolves.
Newcastle 2 - 0 Bournemouth (14:00 á morgun) Þægilegur dagur á skrifstofunni fyrir Newcastle, 2-0. Alexander Isak með eitt og Dan Burn eitt. Tottenham 3 - 0 Leicester (16:30 á morgun) Harry Kane elskar að mæta Leicester og Spurs liðið reyndar í heild sinni. Kane hendir í öll þrjú mörkin fer heim með boltann og setur hann inn í geymslu. Brentford 1 - 1 Arsenal (11:00 á sunnudag) Erfiður leikur að mörgu leyti að spá í. Brentford ná oft að gíra sig upp í leiki gegn stóru liðunum en Arsenal hafa verið að spila vel og líta mjög vel út. Saliba kemur Arsenal yfir en Toney skorar úr víti. Everton 2 - 2 West Ham (13:15 á sunnudag) Hvað sitja fimmtudagar í Evrópudeildinni mikið í West Ham. Fengu þó stutt ferðalag til Danmerkur í gær. Situr nógu mikið í þeim til þess að Everton nær í stig á Goodison. Ingimar spáir líka í þrjá leiki í Championship-deildinni þar sem það eru bara sjö leikir í deild þeirra bestu. Norwich 3 - 1 WBA (14:00 á morgun) Josh Sargent masterclass incoming. Burnley 1 - 0 Bristol City (14:00 á morgun) Nýtt upphaf á Turf Moor. Vincent Kompany Tiki Taka Burnley. Markaskorarinn JB7. Birmingham 2 - 1 Coventry (14:00 á morgun) Legendið John Eustace að leiða Birmingham í enn eitt miðjumoðið þeir vinna þó þennan leik og Manchester mennirnir Mejbri og Chongarinn sjá til þess að stigin þrjú verða enn á St. Andrew's í lok dags.
Fyrri spámenn: Teddi Ponza - 8 réttir Nökkvi Þeyr Þórisson - 7 réttir Tómas Þór - 6 réttir Magnús Kjartan - 4 réttir Höskuldur Gunnlaugs - 4 réttir Oliver Heiðarsson - 1 réttir
|