fös 16.sep 2022
[email protected]
„Besta tilfinning í heimi að spila með bróður sínum"
 |
Nökkvi Þeyr og Þorri Mar árið 2019 |
Nökkvi Þeyr Þórisson sló í gegn með KA í sumar en hann var seldur til Beerschot í Belgíu á dögunum.
Nökkvi spilaði vinstra megin í þriggja manna framlínu og skoraði ófá mörkin með því að 'kötta' inn og skrúfa boltann í fjærhornið. Þorri Mar Þórisson, tvíburabróðir Nökkva spilaði mikið fyrir aftan hann í vinstri bakverðinum í sumar. Nökkvi var í viðtali í Innkastinu á dögunum þar sem hann talaði um það hvernig væri að spila með bróður sínum. „Það er besta tilfinning í heimi að spila með bróður sínum. Það er eitthvað sem maður er stoltastur af, að spila með bróður sínum í efstu deild með KA í toppbaráttu, það er eitthvað sem maður mun varðveita," sagði Nökkvi.
|