sun 18.sep 2022
[email protected]
Spánn: Real Madrid hafði betur í grannaslagnum
Atletico Madrid 1-2 Real Madrid 0-1 Rodrygo ('18 ) 0-2 Federico Valverde ('36 ) 1-2 Mario Hermosa ('83 )
Atletico Madrid og Real Madrid mættust í grannaslag í spænsku deildinni í dag. Atletico byrjaði leikinn betur en náði ekki að nýta færin en Rodrygo refsaði fyrir það og kom Real yfir eftir 18 mínútna leik. Akkúrat 18 mínútum síðar var staðan orðin 2-0. Vinicius átti frábæran sprett sem endaði með skoti í stöngina en boltinn barst svo út til Valverde sem skoraði í opið markið. Síðari hálfleikurinn var ansi rólegur en Mario Hermosa minnkaði muninn fyrir Atletico þegar hann setti öxlina í boltann eftir hornspyrnu. Hermosa var síðan rekinn útaf með rautt spjald í uppbótartíma en hann fékk tvö gul með stuttu millibili. Önnur úrslit dagsins og staðan í deildinni hér fyrir neðan: Betis 2 - 1 Girona
Osasuna 0 - 2 Getafe
Real Sociedad 2 - 1 Espanyol
Villarreal 1 - 1 Sevilla
|