fös 23.sep 2022
[email protected]
U21 mætir Tékkum á Víkingsvelli í dag - Allt undir í umspilinu
 |
U21 árs landsliðið spilar við Tékkland í dag |
Íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri spilar við Tékkland í umspili um sæti á Evrópumótinu en leikurinn er spilaður á Víkingsvelli klukkan 16:00.
Ísland kom sér í umspilið eftir æsispennandi lokaumferð í riðlakeppninni.
Liðið þurfti að vinna Kýpur og treysta á að Portúgal myndi gera liðinu greiða og vinna Grikkland. Ísland vann Kýpur 5-0 á meðan Portúgal rétt marði Grikkland, 2-1, og komst Ísland því í umspilið.
Ísland spilar við Tékkland í tveggja leikja rimmu. Fyrri leikurinn er á Víkingsvelli í dag klukkan 16:00 en síðari leikurinn á þriðjudag í Tékklandi. Sigurvegarinn fer í lokakeppni EM sem fer fram í Georgíu og Rúmeníu á næsta ári.
Landslið karla - U21 - umspil 16:00 Ísland-Tékkland (Víkingsvöllur)
|