sun 25.sep 2022
[email protected]
Langflestir erlendir eigendur í enska boltanum
CIES Football Observatory heldur utan um ýmsa tölfræði tengda fótboltaheiminum og birti áhugaverðar tölur um hlutfall erlendra eigenda knattspyrnfélaga í helstu deildum Evrópu.
Það kemst engin deild með tærnar nálægt hælum enska boltans þar sem 15 af 20 félögum í úrvalsdeildinni eru í eigu erlendra aðila. Þá eru 15 af 24 félögum í Championship deildinni einnig í eigu erlendra aðila, í heildina 30 af 44 félögum sem gerir rúm 68%. Belgía er í öðru sæti listans með 18 félög af 30 í tveimur efstu deildunum í eigu erlendra aðila en það vekur athygli að efsta deild franska boltans sé í þriðja sæti. 11 af 20 félögum í efstu deild eru í erlendri eigu, flest í eigu bandarískra fjárfesta sem keyptu fyrr á þessari öld með von um góðan sjónvarpssamning sem ekkert varð úr. Ítalski og spænski boltinn eru á svipuðu reiki með sjö félög af tuttugu í erlendri eigu. Efsta deild: 1. England 15/20 (75%) 2. Belgía 11/18 (68%) 3. Frakkland 11/20 (55%) 4. Portúgal 7/18 (39%) 5. Ítalía 7/20 (35%) 6. Spánn 7/20 (35%) 7. Holland 2/18 (11%) 8. Þýskaland 0/18 (0%) B-deild: 1. England 15/24 (63%) 2. Belgía 7/12 (58%) 3. Portúgal 8/18 (44%) 4. Ítalía 7/20 (35%) 5. Spánn 6/22 (27%) 6. Frakkland 4/20 (20%) 7. Holland 2/20 (10%) 8. Þýskaland 0/18 (0%)
|