fim 29.sep 2022
[email protected]
Meistaradeild kvenna: Bayern síðasta liðið inn í riðlakeppnina
Bayern Munchen er síðasta liðið til að tryggja sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna en liðið sigraði Real Sociedad í kvöld.
Glódís Perla Viggósdóttir var á sínum stað í hjarta varnarinnar í kvöld en hún lék einnig í 1-0 sigri Bayern í fyrri leik liðanna. Bayern komst í þriggja marka forystu í fyrri hálfleik í kvöld en Sociedad minnkaði muninn áður en flautað var til hálfleiks. Ekkert mark var skorað í þeim síðari. Íslendingaliðin Rosengard, Juventus og PSG tryggðu sér sæti í riðlakeppninni í gær. Roma tryggði sætið sitt í riðlakeppninni fyrr í dag með 4-1 sigri á Sparta Prag, samtals 6-2. Sjá einnig: Meistaradeild kvenna: Juventus í riðlakeppnina - Sara Björk skoraði Liðin sem eru komin í riðlakeppnina - Tvö sæti laus
|