sun 02.okt 2022
[email protected]
Ítalía: Kærkominn sigur Juventus - Vlahovic með mark og stoðsendingu
 |
Dusan Vlahovic |
Juventus 3 - 0 Bologna 1-0 Filip Kostic ('24 ) 2-0 Dusan Vlahovic ('59 ) 3-0 Arkadiusz Milik ('62 )
Juventus hefur ekki farið vel af stað í ítölsku deildinni en liðið tók á móti Bologna í dag. Liðið var með 10 stig eftir sjö leiki í 10. sæti fyrir leikinn í kvöld. Juventus sigraði leikinn með þremur mörkum gegn engu. Dusan Vlahovic átti stórann þátt í því. Hann sá til þess að liðið var með 1-0 forystu í hálfleik með því að leggja upp á Filip Kostic. Hann skoraði síðan sjálfur áður en Arkadiusz Milik gulltryggði sigurinn. Liðið er því komið upp í 7. sæti deildarinnar en þetta var fyrsti sigur liðsins í síðustu fimm leikjum í deildinni.
|