mán 03.okt 2022
[email protected]
Byrjunarlið Leicester og Forest: Vardy og Lingard koma inn
 |
 |
Mynd: EPA
|
Botnlið Leicester tekur á móti nýliðum Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Þessi leikur gæti reynst ansi mikilvægur fyrir Brendan Rodgers og lærisveina hans í Leicester sem hafa farið hörmulega af stað á tímabilinu. Stjórasæti Rodgers er talið vera í hættu þrátt fyrir frábæran árangur á fyrstu tímabilunum við stjórnvölinn. Rodgers gerir aðeins eina breytingu frá 6-2 tapi gegn Tottenham í síðustu umferð en varnarleikur Leicester hefur verið skelfilegur eftir brottfarir Kasper Schmeichel og Wesley Fofana í sumar. Liðið er búið að fá 22 mörk á sig í 7 leikjum. Jamie Vardy kemur aftur inn í byrjunarliðið fyrir Patson Daka sem fer á bekkinn. Steve Cooper, stjóri Forest, gerir þrjár breytingar frá tapi í nýliðaslag gegn Fulham. Forest tapaði hinum nýliðaslagnum umferðina þar á undan og þarf að fara að safna stigum því það er erfið fallbarátta framundan, en liðið er í næstneðsta sæti aðeins með fjögur stig. Jesse Lingard kemur inn í byrjunarliðið ásamt Lewis O'Brien og Cheikhou Kouyate. Þeir koma inn fyrir Ryan Yates, Willy Boly og Remo Freuler. Leicester: Ward, Justin, Faes, Evans, Castagne, Ndidi, Tielemans, Dewsbury-Hall, Barnes, Maddison, Vardy. Varamenn: Iversen, Amartey, Thomas, Albrighton, Praet, Soumare, Iheanacho, Perez, Daka. Nott. Forest: Henderson, Williams, Cook, McKenna, Lodi, O'Brien, Kouyate, Gibbs-White, Lingard, Johnson, Awoniyi. Varamenn: Hennessey, Worrall, Aurier, Boly, Mangala, Yates, Freuler, Surridge, Dennis.
|