mán 03.okt 2022
[email protected]
Einkunnir Leicester og Forest: Maddison fær tíu
 |
 |
Mynd: EPA
|
James Maddison var óumtvíræddur maður leiksins er Leicester rúllaði yfir Nottingham Forest í botnslag ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Maddison skoraði tvö og gaf eina stoðsendingu í 4-0 sigri sem gerði Leicester kleift að jafna Forest á stigum. Núna deila liðin botnsætinu en lærisveinar Brendan Rodgers stefna beinustu leið af fallsvæðinu eftir hörmulega byrjun á tímabili. Sky Sports gefur Maddison hvorki meira né minna en 10 í einkunn fyrir sinn þátt í sigrinum. Hann var óaðfinnanlegur og algjörlega ástæðan fyrir sigri heimamanna. Harvey Barnes, Youri Tielemans, Wout Faes og Kiernan Dewsbury-Hall fá 8 í einkunn fyrir sinn þátt í sigrinum. Leicester: Ward (7), Justin (7), Faes (8), Evans (7), Castagne (7), Ndidi (7), Tielemans (8), Dewsbury-Hall (8), Barnes (8), Maddison (10), Vardy (7). Varamenn: Soumare (6), Daka (7) Forest: Henderson (6), Williams (6), Cook (6), McKenna (6), Lodi (6), O'Brien (6), Kouyate (6), Gibbs-White (6), Lingard (6), Johnson (6), Awoniyi (6). Varamenn: Freuler (6), Yates (6), Aurier (6), Dennis (5), Mangala (6)
|