þri 04.okt 2022
[email protected]
Championship: QPR lagði topplið Sheffield United
 |
QPR vann toppliðið |
 |
Luton gerði sex marka jafntefli við Huddersfield |
Mynd: Getty Images
|
Sex leikir fóru fram í ensku B-deildinni í kvöld en QPR vann óvæntan 1-0 sigur á toppliði Sheffield United á Bramall Lane.
Bristol City gerði markalaust jafntefli við Coventry City á meðan Cardiff City lagði Blackburn Rovers, 1-0. Mark Harris gerði sigurmark Cardiff þegar sjö mínútur voru eftir. Í uppbótartíma gat Blackburn jafnað metin er liðið fékk vítaspyrnu en George Hirst var sendur á punktinn. Ryan Allsop, markvörður Cardiff, sá við honum og lokatölur því 1-0 fyrir Cardiff.
Luton og Huddersfield gerðu 3-3 jafntefli. Byrjunin var nokkuð skrautleg en Carlton Morris gerði fyrst sjálfsmark í liði Luton áður en Michal Helik gerði slíkt hið sama hinum megin á vellinum.
Luton var 3-2 yfir í hálfleik en Ben Jackson tókst að jafna metin þegar tuttugu mínútur voru eftir. David Kasumu, leikmaður Huddersfield, fékk rauða spjaldið í uppbótartíma.
Chris Willock gerði eina markið er QPR vann topplið Sheffield United, 1-0. Markið kom í upphafi síðari hálfleiks en United er enn á toppnum með 24 stig ásamt Norwich sem gerði 1-1 jafntefli við Reading.
Úrslit og markaskorarar: Bristol City 0 - 0 Coventry Cardiff City 1 - 0 Blackburn 1-0 Mark Harris ('83 )
1-0 George Hirst ('90 , Misnotað víti)
Luton 3 - 3 Huddersfield 0-1 Carlton Morris ('11 , sjálfsmark)
1-1 Michal Helik ('18 , sjálfsmark)
1-2 Jordan Rhodes ('32 , víti)
2-2 Elijah Adebayo ('37 )
3-2 Jordan Clark ('45 )
3-3 Ben Jackson ('70 )
Rautt spjald: David Kasumu, Huddersfield ('90)
Sheffield Utd 0 - 1 QPR 0-1 Chris Willock ('51 )
Sunderland 0 - 0 Blackpool Reading 1 - 1 Norwich 0-1 Grant Hanley ('50 )
1-1 Jeff Hendrick ('60 )
|