mið 05.okt 2022
[email protected]
Þjálfari ársins í Bestu deild kvenna er...
 |
Pétur Pétursson, þjálfari Vals. |
Í Heimavellinum síðasta sunnudag var það opinberað hvernig lið ársins væri í Bestu deild kvenna, en deildin kláraðist núna um síðustu helgi.
Einnig var það opinberað hver væri leikmaður ársins, efnilegust í deildinni og þjálfari ársins.
Sjá einnig: Lið ársins í Bestu deild kvenna 2022 Leikmaður ársins í Bestu deild kvenna er... Efnilegasti leikmaður Bestu deildar kvenna er... Þjálfari ársins að mati Heimavallarins er Pétur Pétursson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Vals. Valið stóð á milli hans og Kristjáns Guðmundssonar, þjálfara Stjörnunnar.
„Það er mjög erfitt að horfa fram hjá Pétri þegar hann er búinn að vinna tvöfalt," sagði Ingunn Haraldsdóttir í Heimavellinum. „Ég er sammála því, þegar þú vinnur tvöfalt þá ertu að gera eitthvað rétt," sagði Guðrún Jóna Kristjánsdóttir jafnframt. Hægt er hlusta á Heimavöllinn í heild sinni hér fyrir neðan.
|