fös 07.okt 2022
[email protected]
Ásta Eir framlengir við Breiðablik (Staðfest)
Ásta EIr Árnadóttir fyrirliði Breiðabliks hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið.
Ásta lék aðeins 10 leiki í Bestu deildinni í sumar þar sem hún varð fyrir því óláni að rífa liðþófa á æfingu fljótlega eftir að EM pásunni lauk. Hún á að baki 226 leiki með Breiðablik og skorað í þeim 12 mörk. Hún er þrefaldur Íslands og bikarmeistari með liðinu. Þá á hún 11 A landsleiki að baki. „Það er mikið fagnaðarefni fyrir Blika að Ásta Eir sé búin að skrifa undir nýjan samning. Við hlökkum til að sjá Ástu leiða Blikaliðið út á völlinn á komandi misserum," segir í tilkynningu Breiðabliks.
|