fim 27.okt 2022
[email protected]
Hvar eru þeir í dag: Var spáð í enska landsliðið árið 2013
 |
Luke Shaw (hér lengst til hægri) verður örugglega í flugvélinni sem fer til Katar. |
 |
Phil Jones. |
Mynd: EPA
|
 |
Wilfried Zaha. |
Mynd: Getty Images
|
 |
Jack Wilshere. |
Mynd: Getty Images
|
 |
Daniel Sturridge. |
Mynd: Getty Images
|
Árið 2013 setti fjölmiðillinn Independent saman byrjunarlið enska landsliðsins fyrir HM 2022 í Katar. Það er óhætt að segja að þeir séu ekki með neina tímavél þar á bænum því þetta lið - sem þau settu saman fyrir tíu árum - væri alls ekki líklegt til árangurs á HM í vetur. Það er nokkuð öruggt að segja það.
Hér fyrir neðan má sjá hvernig þetta lið og hvað þessir menn eru að gera í dag.
Markvörður: Jack Butland (Crystal Palace) Það hefur ekki mikið ræst úr ferli hans og er hann í dag þriðji markvörður hjá Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni. Lék lengst af með Stoke City.
Hægri bakvörður: Chris Smalling (Roma) Náði ekki að verða lykilmaður hjá Manchester United en hefur náði að búa til góðan feril á Ítalíu með Roma þar sem hann spilar núna stórt hlutverk.
Miðvörður: Nathaniel Chalobah (Fulham) Þótti mjög svo efnilegur er hann lék með Chelsea en hefur alls ekki náð þeim hæðum sem búist var við af honum. Er varaskeifa hjá Fulham í dag en hann lék sinn fyrsta og eina A-landsleik mð Englandi - til þessa - í október 2018..
Miðvörður: Phil Jones (Manchester United) Hvernig þessi leikmaður er enn hjá Man Utd er gríðarlega stór og góð spurning. Er alltaf meiddur og hefur aldrei náð neinum stöðugleika á sínum ferli..
Vinstri bakvörður: Luke Shaw (Manchester United) Eini maðurinn á þessum lista sem verður líklega í hópnum sem fer til Katar.
Hægri kantmaður: Wilfried Zaha (Crystal Palace) Hefur átt flottan feril og er goðsögn hjá Palace, en hann valdi að spila frekar fyrir Fílabeinsströndina en England.
Miðjumaður: Ross Barkley (Nice) Var mjög spennandi þegar hann var að stíga sín fyrstu skref með Everton en varð svo ekkert spennandi þegar hann fór til Chelsea. Er í dag hjá Nice í Frakklandi.
Miðjumaður: Jack Wilshere (Hættur) Miklir hæfileikar en gríðarlega óheppinn með meiðsli. Lagði skóna á hilluna fyrr á þessu ári og er byrjaður að einbeita sér að þjálfun..
Vinstri kantur: Jordon Ibe (Adanaspor) Ibe var seldur frá Liverpool til Bournemouth fyrir 15 milljónir punda árið 2016 en síðan þá hefur hann ekkert gert. Hann hefur aldrei spilað A-landsleik með Englandi og er núna að leika sér í neðri deildunum í Tyrklandi.
Sóknarmaður: Chuba Akpom (Middlesbrough) Ólst upp hjá Arsenal en náði ekki að brjóta sér leið inn í aðalliðið þar. Hefur komið víða en á síðustu leiktíð var hann á láni hjá PAOK í Grikklandi frá Middlesbrough.
Sóknarmaður: Daniel Sturridge (Perth Glory) Átti mjög góðan kafla með Liverpool en sá kafli var ekki mjög langur. Var mikið í meiðslum og er núna hjá Perth Glory í Ástralíu á endaspretti ferilsins.
|