fim 17.nóv 2022
[email protected]
Sadio Mane missir af HM (Staðfest)
Sadio Mane þarf að fara í aðgerð á hné og missir því af öllu heimsmeistaramótinu.
Þetta er mikill skellur fyrir Senegal sem er að missa einn af bestu leikmönnum heims úr leikmannahópi sínum. Mane meiddist á hné í leik með Bayern München 8. nóvember og var upphaflega talið að meiðslin væru smávægileg en núna er komið í ljós að framherjinn öflugi þarf aðgerð. Senegal er í þokkalega þægilegum riðli á HM og byrjar mótið á leik gegn Hollandi á mánudaginn. Þeim leik fylgir svo leikur gegn heimamönnum í Katar og loks gegn Ekvador sem komst upp í gegnum gríðarlega erfiða undankeppni í Suður-Ameríku. Mane er hetja Senegala og skoraði sigurmarkið þegar þjóðin varð Afríkumeistari í fyrsta sinn í febrúar. Senegal vann Egyptaland eftir vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum. Mane endurtók þetta tveimur mánuðum síðar þegar Senegal mætti Egyptalandi í umspilsleik um laust sæti á HM í Katar. Mane skoraði þá aftur sigurmarkið í vítaspyrnukeppni.
|