þri 22.nóv 2022
[email protected]
Orri Steinn gerði tvö þegar U19 tryggði sér sæti í milliriðli
 |
Orri Steinn gerði tvö. |
U19 landslið karla er komið áfram í milliriðla í undankeppni Evrópumótsins.
Strákarnir mættu Kasakstan og unnu þar sannfærandi 4-1 sigur. Þeir enda undankeppnina með sex stig.
Orri Steinn Óskarsson, leikmaður FC Kaupamannahafnar, skoraði tvö mörk í dag. Daníel Freyr Kristjánsson, leikmaður Midtjylland, og Hilmar Rafn Mikaelsson, leikmaður Venezia, gerðu þá sitt markið hvor.
Dregið verður í milliriðla 8. desember, en lokakeppnin fer fram á Möltu 3.-16. júlí.
|