mið 23.nóv 2022
[email protected]
Luka Kostic spáir í Marokkó - Króatía
 |
Luka Lúkas Kostic |
Króatar, sem komust í úrslitaleik á HM í Rússlandi 2018, mætir til leiks klukkan 10:00 og mætir Marokkó. Liðin leika í F-riðli líkt og Belgía og Kanada.
Luka Modric, sem var valinn maður mótsins í Rússlandi, er að taka þátt í sínu síðasta Heimsmeistaramóti og verður fróðelgt að sjá hversu langt hann getur leitt sitt lið.
Þjálfarinn Luka Kostic er frá Króatíu og er hann tilvalinn í að spá í þennan leik. Hann spáir hann sigri sinna manna.
Marokkó 0 - 1 Króatía Marókko eru þekktir fyrir góðan varnarleik og þetta verður harður leikur. Ekki mikið af mörkum en Luka Modric skorar eina mark leiksins um miðjan seinni hálleik - 1:0 fyrir Króatíu.
|