fös 25.nóv 2022
Arnór Sveinn í Breiðablik (Staðfest)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson.
Varnarmaðurinn Arnór Sveinn Aðalsteinsson er búinn að skrifa undir samning við Breiðablik.

Kópavogsfélagið hefur staðfest þessi tíðindi, en það var greint frá því að Arnór væri að fara í Breiðablik hér á síðunni fyrr í dag.

Varnarmaðurinn er uppalinn hjá Breiðabliki en skipti í KR fyrir tímabilið 2017.

Arnór lék lengstum af á sínum ferli sem hægri bakvörður en hefur síðustu tímabil spilað sem miðvörður.

Arnór er 36 ára gamall og kemur í hópinn hjá Breiðabliki þar sem miðverðirnir Mikkel Qvist og Elfar Freyr Helgason eru á förum. Mikkel verður ekki áfram og Elfar Freyr er að ganga í raðir Vals.

Hjá KR varð Arnór einu sinni Íslandsmeistari, það var sumarið 2019. Á nýliðnu tímabili lék hann fjórtán deildarleiki og tvo bikarleiki með KR-ingum.

Á ferlinum á hann að baki 240 leiki í efstu deild og fimmtán leiki í B-deild. Þá á hann að baki tólf A-landsleiki og tvö og hálft tímabil í atvinnumennsku hjá Hönefoss í Noregi.

Breiðablik varð Íslandsmeistari í ár í fyrsta sinn síðan 2010. Þá var Arnór Sveinn leikmaður liðsins.