mán 28.nóv 2022
[email protected]
Melkorka Katrín ráðin sem aðstoðarþjálfari Gróttu
Melkorka Katrín Flygenring Pétursdóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Gróttu.
Melkorka var í haust ráðin sem þjálfari 4. og 5. flokks kvenna eftir að hafa verið hjá FH sem leikmaður og þjálfari yngri flokka á síðustu árum. Melkorka Katrín, fædd 1998, spilaði í efstu deild með FH en hætti fyrir fjórum árum. Hún stundar í dag meistaranám í sjúkraþjálfun og hefur lokið UEFA B þjálfararéttindum. „Knattspyrnudeild Gróttu fagnar því að hafa samið við Melkorku um starfið og hlakkar til komandi samstarfs," segir meðal annars í yfirlýsingu frá Gróttu. Grótta fór upp úr 2. deild kvenna í haust og spilar því í Lengjudeildinni næsta sumar. Melkorka mun aðstoða Pétur Rögnvaldsson aðalþjálfara meistaraflokks kvenna.
|