mán 28.nóv 2022
[email protected]
FA bikarinn: Manchester City fær Chelsea í heimsókn
 |
Raheem Sterling mætir sínum gömlu félögum |
Það var dregið í þriðju umferð FA bikarsins rétt í þessu. Fjórar viðureignir verða á milli úrvalsdeildarliða.
Stærsti leikur umferðarinnar er án efa leikur Manchester City og Chelsea á Etihad leikvanginum. Liverpool bikarmeistararnir frá því á síðustu leiktíð fá Wolves í heimsókn. Man Utd og Everton mætast og Brentford fær West Ham í heimsókn. Vincent Kompany, Jóhann Berg og félagar í Burnley heimsækja úrvalsdeildarliðið Bournemouth. Tottenham fær Portsmouth í heimsókn og topplið ensku úrvalsdeildarinnar, Arsenal heimsækir Oxford sem leikur í þriðju efstu deild. Leikirnir fara fram 6.,7.,8., og 9. janúar. Allir leikirnir Preston - Huddersfield Middlesbrough - Brighton Chesterfield - West Brom Manchester City - Chelsea Charlton eða Stockport - Walsall Boreham Wood - Accrington Stanley Tottenham - Portsmouth Derby County - Barnsley Cardiff City - Leeds Brentford - West Ham Bournemouth - Burnley Coventry - Wrexham Norwich - Blackburn Aston Villa - Stevenage Luton - Wigan Oxford United - Arsenal Fleetwood Town - QPR Liverpool - Wolves Grimsby - Burton Albion Blackpool - Nottingham Forest Dagenham & Redbridge eða Gillingham - Leicester City Forest Green Rovers - Birmingham City Bristol City - Swansea Hartlepool - Stoke City Hull City - Fulham Crystal Palace - Southampton Millwall - Sheffield United Shrewsbury - Sunderland Sheffield Wednesday - Newcastle Manchester United - Everton Reading - Watford Ipswich - Rotherham
|