fös 02.des 2022
[email protected]
Alexa Kirton í Fram (Staðfest)
 |
Framarar fá liðsstyrk |
Fram hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök liðsins í Lengjudeildinni á næsta tímabili því Alexa Kirton hefur skrifað undir samning við félagið. Þetta kom fyrst fram í slúðurpakkanum í lok október. „Alexa er 23 ára varnarsinnaður miðjumaður sem átti frábæran feril með New Mexico í bandaríska háskólaboltanum þar sem hún er leikjahæsti leikmaður skólans frá upphafi," segir í tilkynningu Fram.
Alexa spilaði á Íslandi á liðnu tímabili, lék með Stjörnunni í Bestu deild kvenna og koma þar við sögu í sjö leikjum.
„Alexa er mjög kraftmikill miðjumaður. Líkamlega sterk með góða boltameðferð og mikla leiðtogahæfileika. Við teljum hana styrkja liðið verulega og hlökkum mikið til að sjá hana spila í bláu treyjunni næsta sumar," segir í tilkynningunni.
Fram vann 2. deild á liðnu tímabili og spilar því í Lengjudeildinni á næsta tímabili.
|