fös 02.des 2022
[email protected]
Hjammi spáir í Kamerún - Brasilía
 |
Hjammi hér til hægri. Litla flugvélin er með honum á myndinni. |
Klukkan 19:00 í kvöld eigast við Kamerún og Brasilía er riðlakeppnin á HM í Katar klárast.
Brasilía hefur tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum og innsiglar toppsætið í riðlinum ef liðið forðast tap gegn Kamerún. Á móti þarf Kamerún að vinna Brasilíu til að eiga möguleika á því að fara áfram.
Skemmtikrafturinn Hjálmar Örn Jóhannsson spáir í þennan leik fyrir Fótbolta.net.
Kamerún 2 - 3 Brasilía Kamerún ekki unnuð leik síðan þeir "völtuðu" yfir Búrúndí 0-1 þann 9. juní. Brasilía hefur aldrei litið betur út og hafa ekki átt í veseni hingað til.
Þetta verður markasúpuleikur og endar 3-2 fyrir Brössum. Kamerún situr eftir en Brassar fara áfram með fullt hús stiga.
Skorar Aboubakar í kvöld?
|